Heimir Örn Andrason


May 13

13 mánaða og 1 dags


Skrifað: undir Uncategorized.

Nú er ég orðinn 13 mánaða og pabbi er loksins búinn að setja inn nýjar myndir af mér. Hann breytti líka albúmunum þannig að nú er hægt að skoða myndirnar eftir mánuðum.
Annars er ég bara rosa kátur og hef ekki verið lengi veikur og við vonum bara að það haldist áfram. Ég er farinn að labba á fullu út um allt og finnst það æði! Svo er best að fara út og fá að labba þar. Ég reyni alltaf að komast út á götu, en fæ það ekki.
Það er rosa gaman hjá dagmömmunni og hún er farin að fara mikið með okkur út og þannig næ ég að eyða allri orkunni minni og er því farinn að sofa hjá henni í meira en 20 min :)
En vonandi verður mamma dugleg að skrifa hingað inn fyrir mig og pabbi duglegur að setja inn myndir svo þið getið fylgst með mér :)

Komment (0)



Apr 29

Ársgamall… og rúmlega það


Skrifað: undir Uncategorized.

Jæja, þá er sko tími til kominn að eitthvað sé skrifað hingað inn! Nú er ég búinn að eiga afmæli og er því orðinn 1 árs. Mamma og pabbi héldu fína veislu fyrir mig þar sem fullt af ættingjum og vinum mættu. Mamma bakaði afmælisköku fyrir mig sem ég fékk að smakka og hafði sko ekkert á móti því að gæða mér á henni :)
Ég byrjaði hjá dagmömmu mánaða mótin feb-mars og líkar vel þar. Ég ætla samt að vera þar þar til í júlí þegar hún fer í sumarfrí. Ég byrja svo hjá nýrri dagmömmu sem mamma getur labbað til að sækja mig, en það tekur um 10 min. Þarf alltaf að keyra núna til að sækja mig.
Svo er ég búinn að vera soldið veikur núna í vetur og er alltaf að fá sýklalyf, en er kominn með rör og við ætlum að sjá hvort að ég fari nú ekki að lagast! Mér líður allaveganna mun betur og um 2 tímum eftir að ég fékk rörin þá ákvað ég loksins að sleppa mér sjálfur og fara að labba. Var byrjaður að labba aðeins fyrr, en bara 2-3 skref á milli og var ekki hrifinn af því, en eftir rörin þá bara finnst mér ekkert mál að sleppa :) Það er samt miklu skemmtilegra að draga mömmu og pabba út um alla íbúð með sér heldur en að fara einn.
Pabbi er svo alltaf á leiðinni að fara að setja inn myndir, þannig ef þið viljið sjá myndir þá er bara að tala við pabba og þrýsta á hann að setja inn myndir af mér!

Komment (0)



Nov 13

Nýjar fréttir


Skrifað: undir Uncategorized.

Nú er ég orðinn 7 mánaða og sko kominn tími á að láta aðeins vita af mér!
Ég er búinn að vera í ungbarnasundi síðan um miðjan ágúst og finnst það æðislegt. Að fá að busla í vatninu er uppáhaldið mitt. Svo er ég líka búinn að styrkjast heilan helling enda erum við að gera fullt af skemmtilegum æfingum í sundinu.
Ég er farinn að sitja alveg einn og er farinn að teygja mig alltaf lengra og lengra þar til ég dett á magann, en ég er ekki farinn að skríða og er mamma mjög ánægð með það! Aftur á móti er ég farinn að standa upp og geri það við hvert tækifæri sem ég fæ, vill ekkert vera að sitja þegar ég get staðið!!
Ég er svo líka byrjaður að borða mat, og finnst það voða gott. Vill helst bara gera þetta sjálfur, en ekki láta mata mig (þó ég fái ekkert um það ráðið) og því er allt eldhúsið útatað í mat.
Við fjölskyldan fluttum í Garðabæ í ágúst og líkar mjög vel þar. Við erum búin að koma okkur fyrir að mestu, en það er samt alltaf e-ð smávægilegt sem á eftir að gera sem kemur bara með tímanum.
Svo fer að styttast í jólin og ég er alveg viss um að ég eigi eftir að fara um allt og tæta allt sem ég kemst í! Það verður sko gaman.
En þetta er nóg í bili og vonandi verður mamma duglegri að skrifa inn fréttir af mér.

Komment (0)



Jun 26

Heimir Örn Andrason


Skrifað: undir Blog.

Ég var skírður laugardaginn 20. júní og var nafnið mitt tilkynnt í leiðinni. Ég fékk nafnið Heimir Örn og er nefndur eftir báðum öfum mínum. Ég svaf voða lítið fyrir skírnina og var mamma í mestu vandræðum með að halda mér rólegum, en það gekk þar til átti að fara að klæða mig í kjól! Ég var sko ekki sáttur við að vera klæddur í stelpuföt! En ég náði svo að róa mig og var rólegur mest alla veisluna sem var haldin eftir skírnina.

Annars er ég orðinn voða duglegur, er farinn að halda höfðinu næstum alveg stöðugu og svo spinni ég alltaf í og vill bara standa og sitja eins og fullorðinn maður! Mamma er ekki alveg sátt þar sem hún vill að ég sé litli strákurinn hennar. Svo er ég líka að byrja að skoða hendurnar mínar og er örugglega ekki langt þangað til ég fer að grípa í viljandi…

Nú er pabbi kominn í sumarfrí og við erum að spá í að fara á e-ð flakk í júlí, ætlum að kíkja vestur á langömmu og langafa, til eyja á alla ættingja mína þar og svo kannski e-ð norður að hitta vin pabba.

Komment (0)